yo!
21.11.2006 15:33:32 / isold

umferðin

Umferðin er náttúlega stóralvarlegt fyrirbæri. En alltof fáir taka það alvarlega. Ég skil það eiginlega pínu. Ég er nú bara ný byrjuð að keyra og er ekki enn komin með bílpróf svo ég er svolítið hrædd í umferðini. ég held að bara á þessu ári séu 21 manneskja dáin. Og allt krakkar á mínum aldri. Krakkar sem eru nýbúin að fá bílpróf. Ég veit ekki allmennilega afhverju, en þessi aldurshópur virðist rosalega kærulaus. Afhverju eru unglingar kærulausari en fullorðnir? Ég skil þetta ekki alveg.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 15:26:20 / isold

fóstureiðingar

Um daginn komu læknanemar í skólann og tók bekkinn minn í kynfræðslutíma. Við áttum að blogga um það. Því miður var ég ekki viðstödd og það er svolítið erfitt að skrifa um það. Kennarinn sagði mér að skrifa í staðinn um hvað mér finnst um fóstureiðingar.

Hvað finnst mér um fóstureiðingar?
Auðvitað finnst mér svolítið rangt að drepa fóstur. Þetta er líf, þetta eru börn! Það er nátturlega ógeðslegt að fara og láta drepa barnið sitt áður enn það fæðist bara vegna þess að maður nennir ekki að eignast annan krakka. Kannski bara vegna þess að krakkarnir eru nýfarnir að heiman og þá verður maður óléttur aftur! Þá finnst mér ekki í lagi að fara í fóstureiðingu.
Hinsvegar. Ef manni verður nauðgað finnst mér alltílægi að fara í fóstureiðingu. Mér finnst eiginlega ógeðslegt að eignast krakkan ef manni verður nauðgað. Maður vill ekki eignast barn eftir nauðgara. Maður hatar manninn sem nauðgaði manni. Svo myndi barnið vera föðurlaust. Og ojj kannski myndi barnið líkjast pabbanum.
Ég skil líka ungar stúlkur sem verða óléttar eru kannski ekki í sambandi með pabbanum og eru kannski á kafi í námi. Mér finnst skiljanlegt að þær fari í fóstureiðingu. En ég myndi sammt ekki gera það.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 15:13:45 / isold

unglist

Um daginn kom kona í skólann frá hinu húsinu. Mér fannst það mjög áhugavert. Það er nú svolítið langt síðan þetta átti sér stað en ég man sérstaklega eftir því þegar hún sagði okkur frá einhverju sem heitir götuleikhús. Ég hef alltaf haft gífulegan áhuga á leiklist og mig langar kannski til að verða leikkona. Pabbi minn er leikari og einnig móðursystir mín. Hún sagði að maður gæti unnið í götuleikhúsi á sumrin. Ég ætla pottþétt að sækja um næsta vor!

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 13:47:56 / isold

kvikmyndahátíð

Um daginn var slökkt á öllum ljósastaurum í Reykjarvík. Ég fór niður í bæ með bróður mínum og tveik vinkonum mínum. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki hvernig þetta tengist "kvikmyndahátíð" á nokkurn hátt. Jámm. Það var ágætt það var reyndar lítill sem enginn munur allavega ekki í miðbænum. Þannig að ég og hitt fólkið löbbuðum um allann bæinn og töluðum við fólk sem við þekktum. Við tókum varla eftir því þegar ljósin voru kveikt aftur. En þetta var alveg skemmtilegt kvöld.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 13:40:21 / isold

umferðin

Það kom einhver uferðalögga í skólann um daginn. Hann var að hræða okkur og segja okkur blóðugar sögur um umferðaslis. Kannnski er það bara sniðugt svo við pössum okkur betur í umferðinni en kannski gerir það okkur bara stressaðari ég veit það ekki


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 13:36:28 / isold

námsráðgjafi

Jámm:S
Það kom námsráðgjafi í tíma til okkar um daginn....ekki mikið að segja...
Hún sagði að við ættum að fara til hennar ef við værum með vandamál varðandi námið eða eitthvað annað

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 17:13:14 / isold

busaferð!!

Hæ allir saman:D
Þið eruð kannski hissa á því að ég er alltíeinu farin að blogga ég er ekki búin að blogga síðan um páskana. En málið er sko að ég beinlínist neiðist til þess því ég verð að blogga fyrir lífsleikni og ég fæ ekki að ráða hvað ég blogga um. Ég læt eins og þetta sé eitthvað hræðilegt en þetta er bara fínt, hef bara gott að því að byrja að blogga aftur. Allavega fyrsta verkefnið mitt er að blogga um busaferðina sem ég var að koma úr.

Semsagt ég fór í busaferð í gær. Ég sat með kókó í rútunni við vorum svo heppnar að vera með nemendafélaginu í rútu og þau eru mjög hress. Svo þegar við komum í Þórsmörk var ég með Kókó og Hrönn í herbergi og Beta, Erla og Nala voru í herberginu á móti. Fyrsta einn og hálfan klukkutíman vorum við sex bara ini að tala saman. En svo var einhver leikur sem við þurftum að fara í. Einhverskonar bandaleikur ég nenni ekki að útskýra hann en hann vara alveg ágætur. Svo fór ég bara að hanga með stelpunum og við skelltum okkur í pottin og kinntumst einhverju nýu fólki. Svo man ég ekki hvað ég gerði framm að kvöldvökuni hún var rosalega skemmtileg. Ég þurfti að borða kókósbollu og drekka pepsi á eftir ég lennti í þriðja sæti. Nala sýndi geðveikt flott atriði með díabló. Svo þegar kvöldvakan var búin að var orðið dimmt úti og þá skelltum við okkur í pottinn þar sem allir voru naktir, en ég tók sammt ekki þátt í því. Svo fórum við eitthvað að hlaupa um á sundfötunum og fórum ámilli hópa og skála til að gá hvar mesta stuðið var svo ákváðum við að fara aftur í pottinn þar sem eitthvað fólk ú nemenda félaginu voru. Svo fór ég bara að sofa.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 21:30:59 / isold

hejj

vá fyrsta prófið bara búið! Mér gekk bara mjög vel á því. Ég get ekki beðið eftir því að þau séu bara búin. Þá verð ég frjáls eins og fuglinn. Jeijj. Ég er eitthvað skrýtin í dag kannski vegna þess að ég er búin að eiða næstum öllum deginum í að horfa á disney myndir með kókó, Diljá og Hönnu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 13:11:35 / isold

hæmm

hæ þetta er Ísold hérna:D
Ég er veik heima að læra:( já já svona er lífið. Ég er ekki búin að vera nógu dugleg við það. Ég fór í kringlunna um dagin með krökkunum ég keipti annð par af konvers skóm (ég átti rauða og ég keipti græna) svo núna er ég í skóm í sitthvorri sort8) Svo fórum við í bíó á When a stranger calls. Hún var ekkert mjög skerí.:$

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 12:12:32 / isold

nú er sumar gleðjist gumar

Jeijj sumardagurinn fyrsti var í gær. Ég, Númi, kókó, Diljá, Edda, Gunni og bíbí fórum í einhverja skrúðgöngu sem endaði í KR. Gúrka og Óli voru að halda fánum og eitthvað í skrúðgöngunni. Ég þoli ekki skrúðgöngur:$ Við vorum þar í smástund og svo fórum við niður í bæ. Það var skotbolta keppni á Ingólfstorgi. Heiðar Austmann var að kinna þar og við knúsuðum hann, við knúsuðum líka gaurinn sem vann. Svo fórum við á Subway. Við sáum einhverja gaura að breika og einn gaurinn var þriggja ára eða eitthvað það var bara krúttlegt:) Svo fórum við bara eitthvað að fíflast á Laugarveginum. Bíbí fór og Gunni bauð einhverjum leiðinlegum stelpum úr Árbænum að hitta okkur. Ég þoli ekki þegar Gunni gerir þetta, bíbí og Selma eru skemmtilegar en hann er alltaf að troða einhverjum áttundabekkjar stelpum sem búa einhversstaðar útí rassgati uppá okkur:S Svo fóru þau eitthvað og við hittum Donna og svo fórum við bara að hanga. Ég og Edda keiptum smokka í djóki og vorum eitthvað að fíflast. Svo fórum við heim til Diljá og við leigðum Little Black Book.;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 17:35:44 / isold

heysan peysan

Hæ þú:haha:

Jámm ég hef það fínt. Það var vaka um daginn í kirkjunni það var gegt stuð. Við vöktum alla nóttina og átum fullt af sykri:D jámm svo voru náttúrulega blessuðu páskarnir um daginn líka ég fór til frænku minnar og borðai páska egg með frændsyskinum mínum. Svo er ég líka búin að fíflast fullt með pakkinu. Fórum í sund og gistum og svona sammt hef ég ekkert krassandi slúður handa ykkur nema bara að gunnar og bíbí eru rosa sæt saman og óli og selma eru hætt saman.

Það eru komnar myndir af afmælinu hennar eddu á síðuna loksins og myndir af kettlingunum mínum líka. Sorrí hvað þær koma seint hef bara haft öðrum hnöppum að hneppa. hehe

ATH

Nedó er komið með síðu : www.blog.central.is/nedo og allir krakkarnir í nedó eru með hana svo þetta verður bara mín önnur síða svo allir verða að kíkja á hana með reglulegu millibili  til að tjekka vað vitleisingarnir eru að bralla;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 18:20:44 / isold

páskafrí!

Jejj það er komið páskafrí!8)

Já auðvitað þarf maður að læra eins og ég veit ekki hvað en maður má nú líka aðeins flippa með vinunum. Það var partý hjá Bryndísi um daginn því Hanna var að fara til Kípur. Það var ekkert sérstakt. Ígær fórum við í kringluna það var gegt stuð. Við keiptum ekki mikið vorum bara eitthvað að leika okkur svo fórum við í bíó um kvöldið. Og í dag vorum við öll niðri í bæ að flippa og +eg held að við séum að fara að gera eitthvað í kvöld.

vi ses


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 20:31:12 / isold

hejj

 Hejj!:haha:
sorry er ekkert búin að komast í tölvuna í viku því ég var hjá pabba og hann er ekki með netið. Ég er sammt lítið búin að gera þessa viku nema læra því samræmdu prófin eru að fara að byrja og ég er ekkert smá stressuð:( Jæja ég fór sammt í partý til Eddu á föstudaginn í tilefni af því að Edda átti 15 ára afmæli. Það var gegt stuð. Það koma myndir á síðuna frá því. Svo fór ég í bíó um daginn á date moovie. Og í gær hjálpaði ég Diljá útí horni að vinna í sjoppunni í Vest site story sem er söngleikurinn sem krakkarnir í skólanum mínum eru að gera. Bryndís og Diljá eru að leika í því og fleiri krakkar. Sjúkt flott!

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 18:09:03 / isold

loksins, loksins

Biðin er á enda góðir landsmenn myndir frá rvk mótinu eru loksins komnar:haha:

enjoy;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 14:08:54 / isold

mánudagur til mæðu

Hæmm Ísold með ykkur hér á mánudegi:|
Helgin var ágætt ég og Diljá gistum hjá kókó. Það er reimt inní herberginu hennar eða eitthvað. Við vöknuðum um nóttina við ljóssblossa fyrir ofan rúmið hennar kókóar8|
Svo í gær fórum við familíjan í dagsferð á sumarbústað sem frænka mín á. Ég á lítinn frænda sem er nokkurra mánaða omg hvað hann er sætur!:haha: Það var heitur pottur þarna og meira að segja talva með nettengingu. Svo datt ég á hausinn og fékk risa kúlu. Það var ekkert sérlega þægilegt:$
En myndir eru væntanlegar á síðuna í vikunni meðal annars frá rvk mótinu;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2